26 júní Svínaskarð - Hengill - Lyklafell
Dagurinn byrjaði á að ég lét vita af innbroti inní Hjól.is þar sem hafði verið stolið Hondu CRF AWD, einkennilegt val.
Þjófavarnarkerfið fór ekki í gang fyrr en löggan fór inn.
Við Reynir ákváðum að kíkja á Svínaskarðið, sjá hvort það væri orðið fært og það verður bara að segjast að það hefur sjaldan verið betra, ótrúlega slétt suðurleiðin upp og norður og niðurleiðin en bara grýtt og smá blaut en annars bara flott.
Fórum svo skemmtilegan gamlan og þröngan slóða í átt að Hengilsvæði og svo árfarveginn að Lyklafelli og svo heim.
Góður túr, ca.90km hjá mér.