Létt, hratt og langt, endurotúr 6-8 ágúst 2010

7 Slóðavinir fórum frá Rvk seinnipart föstudags með tjöld og allan búnað sem við þurftum, gistum fyrstu nóttina í Húsafelli blautir og kaldir, lentum í flestum gerðum af slóðum á laugardeginu.
Okkur fækkaði um einn á laugadeginum þar sem hans var óskað í bæinn.
Við hinir gistum aðra nóttina í Haugakvíslarskála.
Sunnudaginn fórum yfir Stóra sand, Krákshraun í átt að Hveravellum, sníktum út smá bensín, hjóluðum svo áleiðis að Kerlingafjöllum og suður Leppistungu og að Geysir, svo bara í bæinn.
Við rúlluðum 635km í þessari ferð, geggjað gaman.

Album info