26 ágúst 2010 Bull Run Guest ranch, hjólabúgarður.
Ég skrapp í ameríkuhrepp á ráðstefnu fyrir Slóðavini og í leiðinni var skoðaður búgarður sem er með lausar beljur, hesta og einnig voru þar villt dádýr og skröltormar.
Einnig er þetta hjólabúgarður, þ.e.a.s að þarna eru hátt í 200 mílur af slóðum(mikið af þeim manngerðir) og að auki voru þarna svipað af beljuslóðum sem einnig mátti hjóla á og þarna ríkti sátt á milli allra.